Volcanohouse er bæði athyglisverð og áhugaverð nýjung í íslenskum ferðamannaiðnaði. Á áberandi stað við Tryggvagötu 11 hafa þrír bærður og fjölskyldur þeirra sett upp sýningarsal til þess að sýna ferðamönnum kvikmyndir frá tveim áhrifamiklum eldgosum. Eldgosið í Heimaey sem olli miklum hamförum á Íslandi árið 1973 og eldgosið í Eyjafjallajökli árið 2010. Það sem er athyglisvert er að þeir bærður bjuggu í Vestmannaeyjum þegar gosið átti sér stað árið 1973 og þurftu að flýja upp á meginlandið með fjölskyldum sínum. Og eru kynni þeirra af afleiðingum eldgoss þannig áþreifanleg.