Hvað er innri vefur?
Með innri vef er átt við síður eða tengla á vefsíðu sem aðeins er opin þeim sem til þess hafa heimild. Þannig er hægt að skipta vefsíðu upp í ytri vef og innri vef. Ytri vefurinn er sá hluti sem allir sjá en innri vefurinn fjallar um málefni sem aðeins tengjast þeim sem hafa heimild samkvæmt notendaskilgreiningu vefstjóra, eins og t.d. félagar í félagasamtökum eða starfsfólk á vinnustað. Sem dæmi má nefna að atburðadagatal getur verið bundið við félagsmenn eingöngu. Á dagatali sem aðeins tilheyrir innri vef er hægt að hafa margs konar viðburði, fundi, uppákomur, skemmtanir og fl. sem aðeins félagsmenn og starfsfólk hefur aðgang að. Einnig má nefna fundargerðir sem meðlimir félagasamtaka hafa aðgang að en ekki utanaðkomandi. Þegar hluti vefsíðunnar tilheyrir innri vef sést hann sjálfkrafa við innskráningu.
Flokkun notenda getur verið þægilegt stjórntæki
Einnig er hægt að nota innri vef til þess að skilgreina aðgang að mikilvægum upplýsingum eins og gagnasöfnum, vinnuplöggum, sameiginlegum myndum og öðrum mikilvægum upplýsingum. Þá er hægt að flokka innri vefi niður í svæði þar sem ákveðinn hópur hefur aðgang að tilteknum hlutum eins og umræðuefni á spjallþráðum eða bloggi. Einnig er hægt að flokka notendur þar sem einn hópur hefur aðgang að ákveðnum gögnum en aðrir ekki. T.d. stjórnarmenn í félagasamtökum, sveitarstjórnum eða fyrirtækjum sem hafa aðgang að fundarboði. Með aðgangsstjórnun Drupal er í auðvelt að setja upp vef sem sníðir ásjónu sína að notandanum. Notendur geta síðan flokkast niður á marga vegu. T.d. í stjórnarmenn, félagsmenn, starfsfólk, vefstjórar og almennir notendur.
Hugmyndabanki á vinnustað
Með því að stilla spjallþræði og aðgangskerfi saman er hægt að setja upp lokaðar umræður á vinnustað þar sem viðfangsefnið er þróun hugmynda. Með þessum hætti er hægt að fá starfsfólk til að taka í og móta hugmyndir að nýrri sókn, nýjum markaði, nýjum vinnuaðferðum eða nýjum leiðum í starfsmannahaldi. Samtvinnun innri vefja og aðgangsstillinga eru engin takmörk sett. Allt frá minni háttar tilkynningum yfir í umfangsmikla umræðu um nýja uppbyggingu.




