Með vefumsjónarkerfi sem almennt á tölvumáli kallast CMS, eða „content management system“, er átt við stjórnkerfi sem fylgir vefsíðunni og gerir notandanum kleift að stjórna inntaki og uppfæra efni vefsíðunnar. Efni eins og texta og myndum. Til þess að komast að stjórnkerfinu þarf vefstjórinn að skrá sig inn með lykilorði og aðgangsorði. Þegar hann er innskráður opnast nýtt leiðakerfi sem heimilar breytingar á inntaki vefsíðunnar. Þetta er jafn einfalt og að setja inn efni á Facebook
Hverju er hægt að breyta?
Vefstjóri með full réttindi getur gert allar þær breytingar sem nauðyn krefur og kerfið leyfir. T.d. getur hann sett inn nýjar síður, nýja tengla, nýja atburði í atburðadagatal, nýtt efni á allar síður og alla dálka, stjórnað bloggi, spjallrásum, fréttum og innsetningu mynda ásamt því að stýra aðgangi. Vefstjórinn ákveður einnig hvernig aðgangur er settur upp. Hver fær aðgang að hverju og hver fær leyfi til að taka þátt í spjallrásum og hver fær leyfi til að gera athugsemdir, svo dæmi séu nefnd.
Vefsíðufyrirtækið Emstrur var stofnað árið 2005 og hefur frá þeim tíma sett upp vefsíður fyrir margs konar starfsemi. Sjávarútvegsfyrirtæki, gistingu, félagasamtök, listamenn, hönnuði, lækna, innflutningsfyrirtæki, sérfræðinga, ferðaþjónustufyrirtæki, félög, fasteignafélög, verðbréfafyrirtæki, fjármálafyrirtæki, framleiðslufyrirtæki, fasteignasölur, verslanir, verktaka, samstarfsverkefni, laxveiðiá, tónlistarmenn, skóla, rannsóknastofnanir og söfn svo dæmi séu nefnd.








































































